Sandholt er rótgróið fjölskyldubakarí þar sem fjórða kynslóð bakarameistara heldur áfram áratugalangri hefð

Fyrir brúðkaup og aðrar veislur býður Sandholt upp á fjölbreytt úrval af tertum, kökum, eftirréttum, snittum, pinnamat og annarri veisluþjónustu. Áhersla er lögð á ferskt hráefni, vandaðan bakstur og að finna lausn sem hentar hverri veislu fyrir sig. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja fallegar veitingar og sætt meðlæti frá einu elsta starfandi bakaríi landsins.