Sætar Syndir er kökubúð í Kópavogi sem sérhæfir sig í fallegum og sérhönnuðum kökum fyrir brúðkaup og önnur sérstök tilefni.
Brúðarkökur eru útfærðar í samráði við brúðhjónin, bæði hvað varðar bragð, stærð og skreytingar, og hægt er að velja úr fjölbreyttum útfærslum. Einnig eru í boði smakkbox, makkarónur, bollakökur, konfekt og veislubakkar sem henta vel með brúðartertunni eða á sætindaborðið.