Blómahönnun í Reykjavík sérhæfir sig í brúðkaupsskreytingum og getur tekið að sér heildarútfærslu dagsins frá
A–Ö.

Þau hanna meðal annars brúðarvendi, barmblóm, skreytingar fyrir athöfn, sal, borð, bar og móttöku, allt eftir óskum og stíl brúðhjónanna. Með blómaskreytingum fylgir einnig frí leiga á vösum og undirlögum úr fjölbreyttu úrvali þeirra. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja persónulega og faglega heildarhönnun á blómaumgjörðinni.