Blómaval býður upp á fjölbreytta blóma- og skreytingaþjónustu fyrir brúðkaup og önnur sérstök tilefni.

Þar er meðal annars hægt að fá brúðarvendi, barmblóm, höfuðkransa, kirkjuskreytingar, bílaskreytingar og borðskreytingar, auk borðbúnaðar, kerta og annarra skreytinga fyrir veisluna. Blómaskreytar Blómavals aðstoða einnig við val og útfærslu svo blómin og skreytingarnar falli vel að stíl og stemningu dagsins.