Þórdís Zophia er blómameistari, hönnuður og stílisti sem vinnur með brúðkaup og viðburði víðs vegar um Ísland.

Þórdís sækir innblástur í íslenska náttúru og leggur áherslu á fallegar, persónulegar og heildstæðar útfærslur, allt frá brúðarvöndum og blómaskreytingum yfir í stíliseringu og umgjörð dagsins. Hún hentar sérstaklega vel fyrir brúðhjón sem vilja fá faglega aðstoð við að skapa einstakt útlit og stemningu fyrir stóra daginn.