Litlaprent býður upp á fjölbreytta prentþjónustu og faglegan frágang sem hentar vel fyrir brúðkaup og aðrar veislur.
Þar er meðal annars hægt að prenta boðskort, matseðla, plaköt, límmiða og annað sérsniðið prentefni, auk þess sem boðið er upp á uppsetningu og fjölbreyttan frágang á borð við gyllingu, lamineringu, stönsun og upphleypingu. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja skapa fallegt og samræmt útlit á prentefni fyrir stóra daginn.