Prentagram sérhæfir sig í hágæða ljósmyndaprentun og persónulegum prentvörum.
Fyrir brúðkaup býður fyrirtækið meðal annars upp á boðskort, nafnamerkingar, skilti og annað prentefni, auk ljósmyndabóka og framköllunar sem henta vel til að varðveita minningar eftir daginn. Einnig er hægt að leigja myndakassa með bakgrunni og prentara, sem getur verið skemmtileg viðbót við brúðkaupsveisluna og gefið gestum minningu til að taka með sér heim.