Og Smáatriðin býður upp á persónulega og faglega aðstoð við brúðkaupsskipulag og skreytingar, allt eftir því hversu mikla hjálp þið viljið. 

Alina getur tekið þátt frá fyrstu hugmyndum og hönnun yfir í bókanir, samskipti við þjónustuaðila, tímalínur, skipulagsskjöl og framkvæmd dagsins sjálfs.

Einnig er hægt að fá sérsniðna skreytingaþjónustu þar sem þið ráðið umfangi aðstoðarinnar, hvort sem það er að skoða sal, velja blóm, hanna bréfsefni, útbúa skreytingar eða sjá um uppsetningu og leiguvörur. 

Þjónustan er því sveigjanleg og hægt að fá allt frá léttri ráðgjöf yfir í mun meiri aðstoð við stóra daginn.