Stikkfrí er brúðkaups- og viðburðaskipulagsþjónusta sem aðstoðar brúðhjón við bæði stóru ákvarðanirnar og öll litlu smáatriðin í kringum daginn.
Markmiðið er að létta á skipulaginu og hjálpa pörum að halda utan um ferlið á skemmtilegan og persónulegan hátt. Góður kostur fyrir þau sem vilja faglega aðstoð við hluta af undirbúningnum eða meiri heildarstuðning við að koma brúðkaupinu í framkvæmd.