Bloom by Eyrún Birna býður upp á einstakan íslenskan brúðarfatnað þar sem áhersla er lögð á rómantík, flæði, þægindi og falleg efni.

Kjólar eru hannaðir og saumaðir á Íslandi af Eyrúnu Birnu, kjólaklæðskera og brúðarkjólahönnuði, sem hefur sérsaumað brúðarkjóla frá árinu 2015. Hver kjóll er framleiddur í örfáum eintökum og einnig er hægt að nýta endurnýttan textíl fyrir persónulegri og umhverfisvænni útfærslu. Bloom hentar sérstaklega vel fyrir brúðir sem vilja mjúkan, tímalausan og persónulegan kjól fyrir stóra daginn.