Suitup Reykjavík sérhæfir sig í jakkafötum og sérsaumi og hefur frá árinu 2014 aðstoðað þúsundir brúðguma við að finna rétta klæðnaðinn fyrir stóra daginn.

Hér er hægt að fá bæði tilbúin og sérsaumuð jakkaföt, smóking, skyrtur, skó, bindi og aðra fylgihluti sem fullkomna heildarútlitið. Starfsfólkið aðstoðar við val út frá árstíma, stemningu brúðkaupsins og því hvernig fötin nýtast áfram eftir daginn. Einnig er hægt að bóka hópmælingu fyrir brúðguma, svaramenn og aðra í brúðkaupsveislunni.