Jarðböðin, eða Earth Lagoon Mývatn, er jarðhitalaug og heilsulind í einstöku umhverfi við Mývatn.
Hér geta gestir slakað á í steinefnaríku jarðhitavatni, notið gufubaðs, heits potts, laugarbars og fallegs útsýnis. Einnig er boðið upp á nudd og veitingar á Earth Lagoon Bistro. Jarðböðin henta því sérstaklega vel sem rómantísk upplifun fyrir brúðhjón, hvort sem er fyrir stóra daginn, í brúðkaupsferð eða sem falleg brúðkaupsgjöf fyrir tvo.