Skógarböðin eru einstök heilsulind í Vaðlaheiði, aðeins örfáum mínútum frá Akureyri, með fallegu útsýni yfir Eyjafjörð.

Skógarböðin henta einstaklega vel fyrir brúðhjón sem vilja dekra við sig fyrir eða eftir stóra daginn, eða sem gjöf og upplifun fyrir tvo. Á staðnum er einnig Skógur Bistro þar sem hægt er að njóta léttra veitinga með útsýni yfir fjörðinn.