Telma Erlendsdóttir er bæði hársnyrtir með sveinspróf frá 2017 og menntaður förðunarfræðingur frá Reykjavík Makeup School.

Hún starfar í Reykjavík og getur séð bæði um hár og förðun fyrir stóra daginn. Góður kostur fyrir brúðir sem vilja hafa einn fagaðila sem sér um heildarútlitið og samræmir hár og förðun.