Heiðdís er menntaður förðunarfræðingur og hársnyrtir sem er búsett á Akureyri.

Heiðdís Austfjörð er reynslumikill förðunarfræðingur og hársnyrtir og starfar í dag á Aris. Hún lærði förðun við Delamar Academy í London á árunum 2007–2008 og útskrifaðist með diploma í Makeup Artist Design. Heiðdís útskrifaðist síðan sem hársnyrtir frá VMA árið 2013 og lauk sveinsprófi árið 2014. Með langa reynslu bæði í förðun og hári er hún góður kostur fyrir brúðir sem vilja fá faglega og heildstæða þjónustu fyrir stóra daginn.