María Björk er förðunarfræðingur á Akureyri, útskrifuð frá Reykjavík Makeup School, og tekur að sér farðanir fyrir fjölbreytt tilefni.

Hún er jafnframt söngkona, sem gerir hana að einstaklega skemmtilegum aðila innan brúðkaupsgeirans. Hjá Maríu er hægt að bóka faglega förðun fyrir brúðir, brúðarmeyjar eða aðra gesti fyrir stóra daginn.