Á vef Þjóðkirkjunnar er hægt að skoða kirkjur um allt land á einum stað og finna hentuga kirkju fyrir brúðkaupsathöfn.

Hér eru skráðar á fjórða hundrað kirkjur, kapellur og bænhús, ásamt upplýsingum um meðal annars staðsetningu, gestafjölda, aðgengi og aðstöðu þar sem það á við. Prestar Þjóðkirkjunnar framkvæma hjónavígslur og því er síðan góður upphafspunktur fyrir brúðhjón sem vilja kanna möguleika á kirkjubrúðkaupi.