Ásatrúarfélagið býður upp á heiðnar hjónavígslur sem eru persónulegar, frjálslegar og mótaðar að óskum brúðhjónanna.
Athafnir í Ásatrúarfélaginu er leidd af goða og felur meðal annars í sér eiða hjónaefnanna, eiðbaug og drykkjarhorn, auk þess sem hægt er að bæta inn tónlist, ljóðalestri, hringaskiptum og öðrum persónulegum atriðum. Hjónavígslurnar fara oft fram utandyra á stað sem hefur sérstaka merkingu fyrir parið og geta verið allt frá mjög fámennum athöfnum upp í stór brúðkaup.