Veisló býður upp á skemmtilega leið til að varðveita augnablikin sem brúðhjónin sjá kannski ekki sjálf á stóra deginum. Þið leigið upptökuvél sem gestirnir geta notað til að taka upp stemninguna, kveðjur og ógleymanleg augnablik úr veislunni.

Eftir veisluna er vélinni skilað og Veisló vinnur úr efninu 3–5 mínútna myndband, auk þess sem þið fáið allar upptökurnar afhentar. Útkoman verður persónuleg og lifandi minning frá deginum, séð með augum fólksins sem stóð ykkur næst.

Þetta er sérstaklega skemmtileg viðbót við hefðbundinn ljósmyndara eða videographer, þar sem gestirnir ná oft þessum litlu, fyndnu og einlægu augnablikum sem annars hefðu auðveldlega farið fram hjá öllum.