Nauthóll býður upp á glæsilegan veislusal við rætur Öskjuhlíðar með útsýni yfir hafið.
Salurinn tekur um 120 gesti til borðs og allt að 250 í standandi veislu og hægt er að velja úr fjölbreyttum brúðkaupsmatseðlum, smáréttum og miðnætursnarli. Fallegur kostur fyrir brúðhjón sem vilja bæði veislusal og faglega matar- og framreiðsluþjónustu.