RUB23 á Akureyri býður upp á fjölbreytta veisluþjónustu fyrir allt frá litlum hópum upp í stórar veislur.

Hjá Rub23 er hægt að velja meðal annars smárétti, hlaðborð og þriggja rétta veislumat og þjónustan er sérsniðin að tilefninu. Þau taka sérstaklega að sér brúðkaup og geta mætt með veisluþjónustuna á þann stað sem hentar.