Strikið er veitingastaður á fimmtu hæð í miðbæ Akureyrar með glæsilegu útsýni yfir Pollinn og Eyjafjörð.
Þar eru tveir salir og Norðursalurinn hentar meðal annars fyrir stærri veislur og hópa, auk þess sem boðið er upp á hlaðborð og hópmatseðla. Fallegur kostur fyrir brúðkaupsveislu, rehearsal dinner eða aðrar samverustundir í kringum stóra daginn.