Brúnir Horse er fjölskyldurekið fyrirtæki á sveitabæ í Eyjafirði, skammt frá Akureyri, þar sem saman koma íslenski hesturinn, heimagerðar veitingar og list.
Á staðnum er sýningarrými, kaffihús og boðið upp á hópa og viðburði eftir samkomulagi. Brúnir getur því verið skemmtilegur og óhefðbundinn kostur fyrir minni brúðkaup eða samverustundir þar sem óskað er eftir sveitalegri og persónulegri stemningu í fallegu umhverfi.