Eyvindartunga við Laugarvatn býður upp á sannkallað sveitabrúðkaup þar sem brúðhjón geta haft staðinn fyrir sig yfir heila helgi.

Nýuppgerð hlaða tekur allt að 126 gesti og á staðnum eru gisting, einkatjaldsvæði, bar, móttökueldhús og búnaður fyrir veisluna. Athöfnin getur farið fram inni, úti eða í einni af fallegum kirkjum í nágrenninu.