FÍ salurinn í Mörkinni 6 í Reykjavík er rúmgóður og vel búinn veislusalur sem rúmar allt að 300 manns, eða um 200 gesti við borð.

Þar eru meðal annars tveir barir, eldhús með leirtaui, hljóðkerfi, myndvarpi, sýningartjald og möguleiki á sviði og háborði. Góður kostur fyrir brúðkaup þar sem óskað er eftir stórum og sveigjanlegum sal með góðri aðstöðu.