Sykursalur í Grósku er nútímalegur og glæsilegur veislusalur sem tekur um 170 gesti í sæti og 200 í standandi veislu.

Salurinn er fullbúinn með fyrsta flokks hljóð- og ljósakerfi, hljóðnemum, skjávarpa og sýningartjaldi og hentar vel fyrir brúðkaup þar sem óskað er eftir nútímalegri og stílhreinni umgjörð.