AURUM hannar og handsmíðar giftingar- og trúlofunarhringa í Reykjavík, meðal annars úr endurunnu gulli.

Hjá Aurum er hægt að sérsníða hringi, breyta málmi, bæta við demöntum og fá áletrun, auk þess sem AURUM býður fallegt úrval skartgripa fyrir sjálfan brúðkaupsdaginn. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja íslenska hönnun og tímalausa gripi sem eiga að endast ævina.