Hjá Chronos og acredo færðu bara það besta: einstaka þjónustu og hönnun og þýskt gæðahandverk. Sérsmíði er grunnurinn að öllu hjá acredo. Í staðinn fyrir að velja úr takmörkuðu úrvali giftingarhringa, sem tugir annarra para hafa þegar valið, er acredo hannað af ykkur, með aðstoð sérfræðinga Chronos. Framleiðsluferlið tryggir að hringarnir eru í hæsta gæðaflokki og koma til með að endast ævina alla.

Boðið er upp endalausa möguleika þegar kemur að sniðum, málmum, formum, litum og steinum. Þið getið hannað giftingarhringana hjá acredo nákvæmlega eftir eigin hugmyndum og óskum og látið draumahringana ykkar verða að veruleika. Ykkar saga er einstök, og það eiga hringarnir ykkar að vera líka - enda eru engir tveir acredo hringar eins.

Í versluninni er einnig að finna fallegt úrval brúðkaupsskarts í öllum verðbilum frá merkjum á borð við PS Masterpiece - handsmíðað skart frá Páli Sveinssyni, gullsmíðameistara, CARAT* London, Missoma og Lotus fyrir stóra daginn.