Margrét Maack býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir brúðkaup og getur meðal annars komið að deginum sem veislustjóri, DJ, skemmtikraftur eða athafnarstjóri hjá Siðmennt.
Hún hefur mikla reynslu af veislustjórn og leggur áherslu á að lesa í hópinn, halda góðu flæði í dagskránni og koma fólki á dansgólfið. Skemmtilegur kostur fyrir pör sem vilja persónulega og óhefðbundna stemningu á stóra deginum.