Kristín Sif og Stebbi JAK hafa sameinað krafta sína sem veislustjórar eftir áralanga reynslu hvort á sínu sviði, Stebbi sem tónlistarmaður og skemmtikraftur og Kristín sem fjölmiðlakona og gleðigjafi.
Þau aðstoða brúðhjón við að móta dagskrána, sjá um veislustjórn og geta einnig hjálpað við að finna eða fylla inn skemmtiatriði. Góður kostur fyrir þau sem vilja líflega, persónulega og vel skipulagða veislu.