Vandræðaskáld eru leikararnir Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason sem bjóða upp á gamansama og skapandi skemmtun.
Þau geta hentað vel fyrir brúðkaup og aðrar veislur þar sem óskað er eftir óhefðbundnu skemmtiatriði, húmor og lifandi framkomu sem brýtur upp dagskrána og kemur gestum á óvart.
Vilhjálmur, eða Villi Vandræðaskáld eins og hann er oft kallaður, hefur líka tekið að sér skemmtun og veislustjórn fyrir allskonar tilefni við mikinn fögnuð.
Svo hvort þið viljið þau bæði eða annað þeirra þá er góð skemmtun alltaf örugg.