Allt í köku er sérvöruverslun með mikið úrval af bakstursvörum, kökuskreytingum og veisluskrauti.
Fyrir brúðkaup má meðal annars finna borðskreytingar, blöðrur, vegg- og loftskreytingar, hringapúða, gestabækur, myndaalbúm, kökutoppa og ýmsa fylgihluti fyrir veisluna. Einnig er hægt að leigja búnað eins og blöðruhringi og annan skreytingabúnað. Góður staður fyrir þau sem vilja finna margt fyrir útlit og umgjörð brúðkaupsins á einum stað.