BH Hönnun er vefverslun og verslun sem sérhæfir sig í persónulegum veislulausnum og sérhannaðri grafískri hönnun fyrir öll tilefni.
Þar er hægt að fá boðskort, veisluefni, kökutoppa, kökuspjöld, sérmerktar vörur, útskornar skreytingar og ýmislegt 3D-prentað skraut. Hver lausn er útfærð eftir óskum viðskiptavinarins, allt frá litavali og letri yfir í heildarstíl, svo útlit veislunnar verði fallegt og samræmt. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja setja persónulegan svip á stóra daginn og fá mörg smáatriðin hönnuð á einum stað.