Partý Ýr er skreytinga- og viðburðaþjónusta á Dalvík sem aðstoðar einstaklinga og fyrirtæki við að skapa fallega umgjörð fyrir bæði litla og stóra viðburði.

Ellen Ýr er eigandi Partý Ýr og getur þjónusta hennar meðal annars falið í sér skreytingar, skipulag og aðstoð við framkvæmd, sem hentar vel fyrir brúðkaup og aðrar stærri veislur. Góður kostur fyrir þau sem vilja fá hjálp við að setja heildarsvip á daginn og létta á skipulaginu.