Partýland Akureyri býður upp á fjölbreytt úrval af skreytingum, blöðrum, borðbúnaði og veislubúnaði fyrir brúðkaup og önnur tilefni.

Í Partýlandi má meðal annars finna brúðkaupsskraut, glös, diska, servíettur, dúka, kerti og kökutoppa, auk þess sem hægt er að leigja ýmsan búnað fyrir veislur, til dæmis hljóðkerfi, myndakassa, veislutjöld og sýningarbúnað. Partýland býður einnig upp á skreytingaþjónustu og er því góður kostur fyrir þau sem vilja finna bæði skraut og búnað fyrir stóra daginn á einum stað.