Studio Vast er hönnunarstúdíó á Akureyri sem býður upp á fallegar og persónulegar vörur fyrir brúðkaup og önnur sérstök tilefni.
Vaiva Straukaité er grafískur hönnuður og skrautritari og er eigandi Studio Vast en hjá henni má meðal annars fá sérmerkt kerti, brúðkaupsgestabækur, skrautritun og sérhönnuð boðskort. Vaiva leggur áherslu á rómantíska, vandaða og persónulega hönnun sem hentar einstaklega vel fyrir stóra daginn.