Anna Skagfjörð er söngkona, lagahöfundur og söngkennari á Akureyri með reynslu af lifandi tónlistarflutningi við fjölbreytt tilefni.

Anna tekur að sér að syngja við öll tilefni og er dásamlegt að hlusta á hana syngja og spila á píanó hvort sem óskað er eftir fallegum söng við athöfnina, móttöku eða öðru persónulegu tónlistaratriði yfir daginn. Hljómsveitin Angurværð, þar sem Anna er söngkona, hentar einnig vel fyrir brúðkaup. Hvort sem þið viljið fallegann söng við píanóspil eða stærri hljómsveitar atriði þá eru þau góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja lifandi og einlægan tónlistarflutning sem getur sett sérstakan svip á stóra daginn.