Ása Lind eða Dj Álfbeat eins og hún kallar sig er rúmlega fimmtugur framhaldsskólakennari með mikla ástríðu fyrir tónlist. 

Ása hefur spilað víða á klúbbum, hátíðum og börum í Reykjavík síðustu 10 ár eða svo. Hún hefur tekið af sér slatta af brúðkaupum, afmælum og árshátíðum á seinustu árum og mætti segja að fimmtugsafmæli væri hennar sérsvið. Hún hentar því mjög vel ef brúðhjónin eru aðeins eldri en hún er samt líka á kafi í nýrri tónlist svo allt gengur.