Glymskrattarnir eru reynslumikil coverhljómsveit sem hefur spilað saman í mörg ár og komið fram á fjölbreyttum viðburðum, þar á meðal brúðkaupum, árshátíðum og afmælum.
Hljómsveitin leggur áherslu á að skapa góða stemningu og halda dansgólfinu lifandi með þekktum lögum sem höfða til breiðs hóps gesta. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja lifandi tónlist, fjör og skemmtilega stemningu á veislunni.