Sveitin hefur komið fram á fjölda árshátíða, dansleikja og annarra viðburða og er vön að halda uppi fjöri fyrir breiðan hóp gesta. Frábær kostur fyrir brúðkaup þar sem markmiðið er fullt dansgólf, íslenskir slagarar og alvöru sveitaballsstemning.
Sveitin er jafnvíg á klassíska íslenska sveitaballstónlist og blandað prógram með íslenskum og erlendum lögum og leggur áherslu á að koma dansgólfinu almennilega af stað. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja fjölbreytta tónlist og mikið stuð fram eftir kvöldi.