Trúbbatríóið býður upp á lifandi tónlist fyrir brúðkaup, veislur og aðra viðburði.

Tríóformið hentar sérstaklega vel þegar óskað er eftir skemmtilegri og afslappaðri stemningu, hvort sem er við móttöku, kvöldverð eða þegar líður á veisluna. Góður kostur fyrir brúðhjón sem vilja lifandi tónlist sem getur bæði skapað notalega stemningu og tekið þátt í fjörinu þegar kvöldið fer af stað.