Gefðu brúðkaupsdeginum einstakan og tímalausan blæ með akstri í klassískum 1958 Oldsmobile Ninety-Eight. 

Bíllinn er sönn amerísk hönnunarperla – rúmgóður, glæsilegur og einstaklega mikið augnayndi í ljósmyndatökur.

Þjónustan er heildstæð en Daníel, eigandi bílsins, sér sjálfur um bílstjórann og tryggir að þið komist á áfangastað í fullkomnum þægindum, ásamt því að sjá um skreytingar á bílnum í stíl við ykkar óskir. Til að tryggja að bíllinn skarti sínu allra besta og upplifunin verði fullkomin er hann aðeins í notkun yfir sumarmánuðina og svo lengi sem veður leyfir.