Síðan heldur áfram að stækka - Við þökkum þolinmæðina ♡
Fjárhagsáætlun
Ákveðið heildarramma snemma og forgangsraðið því sem skiptir ykkur mestu máli. Hafið einnig svigrúm fyrir óvæntan kostnað.
Gestafjöldi og staðsetning
Gestafjöldinn hefur áhrif á sal, veitingar og kostnað. Veljið stað sem rúmar gestina vel og hentar þeirri stemningu sem þið viljið skapa.
Tímalína og bókanir
Bókið mikilvægustu þjónustuaðilana tímanlega og gerið skýra tímaáætlun fyrir undirbúninginn og brúðkaupsdaginn.
Óskir brúðhjónanna
Munið að dagurinn á að endurspegla ykkur. Veljið hefðir, útlit og dagskrá sem henta ykkur, frekar en að gera allt eins og „á að gera“.