Síðan heldur áfram að stækka - Við þökkum þolinmæðina ♡
Stíll og óskir
Veljið förðun sem passar við persónulegan stíl, klæðnað og stemningu dagsins. Gott er að sýna förðunarfræðingnum myndir af því sem þið hafið í huga.
Prufuförðun
Bókið prufu fyrirfram til að sjá hvernig litir, áferð og ending henta húðinni og til að geta gert breytingar í rólegheitum.
Reynsla og ending
Veljið förðunarfræðing með reynslu af brúðarförðun og spyrjið hvernig tryggt sé að förðunin haldist vel í ljósmyndum og út allan daginn.
Tími, verð og fyrirkomulag
Fáið skýrt fram hvað er innifalið í verði, hvort ferðakostnaður bætist við en margir förðunarfræðingar eru til í að ferðast ákveðið langt fyrir verkefni, hversu langan tíma förðunin tekur og hvort hægt sé að bóka fleiri úr hópnum sama dag.