Síðan heldur áfram að stækka - Við þökkum þolinmæðina ♡
Hvað er innifalið í verðinu?
Athugið hvort verðið innifeli aðeins matinn eða einnig starfsfólk, akstur, uppsetningu, leirtau, frágang og þrif.
Gestafjöldi og skammtastærðir
Fáið staðfest hvenær lokafjöldi gesta þarf að liggja fyrir og hvort miðað sé við nægilegt magn fyrir alla.
Sérfæði og ofnæmi
Látið veisluþjónustuna vita tímanlega um ofnæmi, óþol, vegan- og grænmetisfæði og fáið staðfest hvernig því verður sinnt.
Tímasetningar og aðstaða
Samræmið hvenær maturinn kemur, hvernig hann verður borinn fram og hvort veislustaðurinn hafi næga eldunar-, kæli- og framreiðsluaðstöðu.