Síðan heldur áfram að stækka - Við þökkum þolinmæðina ♡
Stemning og gestahópur
Veljið skemmtun sem passar við aldur, áhuga og stemningu gestanna. Það sem hentar einni veislu þarf ekki endilega að henta annarri.
Reynsla og persónuleiki
Skoðið reynslu, umsagnir og fyrri verkefni. Veislustjóri þarf að vera öruggur, skemmtilegur og geta lesið salinn án þess að taka of mikið pláss.
Dagskrá og hlutverk
Fáið skýrt fram hvað viðkomandi sér um, til dæmis kynningar, leiki, ræður, tónlist, DJ, uppistand eða önnur skemmtiatriði, og hvernig það passar inn í dagskrá kvöldsins.
Verð, tími og tæknibúnaður
Staðfestið hvað er innifalið í verðinu, hversu lengi þjónustan stendur, hvort ferðakostnaður bætist við og hvort hljóðkerfi, hljóðnemar eða annar búnaður fylgi.