Síðan heldur áfram að stækka - Við þökkum þolinmæðina ♡
Upplýsingar og orðalag
Passið að dagsetning, tími, staðsetning, klæðnaður og svarfrestur komi skýrt fram. Lesið textann vel yfir áður en kortin fara í prentun.
Stíll og læsileiki
Látið boðskortið passa við stemningu og útlit veislunnar, en veljið letur, stærð og liti sem auðvelt er að lesa.
Magn, verð og afhendingartími
Pantið nokkur aukakort og gerið ráð fyrir hönnun, prentun, umslögum og sendingarkostnaði. Athugið einnig hversu langur framleiðslu- og afhendingartíminn er.
Prentkort eða stafræn boð
Ákveðið hvort henti betur að senda prentuð kort, stafræn boð eða blöndu af hvoru tveggja. Gott er að hafa skýra leið fyrir gesti til að staðfesta mætingu.