Síðan heldur áfram að stækka - Við þökkum þolinmæðina ♡
Stemning og markhópur
Veljið tónlist og skemmtiatriði sem passa við tegund veislunnar, aldur gesta og þá stemningu sem þið viljið skapa.
Dagskrá og tímasetningar
Ákveðið hvenær tónlistin á að vera róleg, hvenær dansinn byrjar og hvar skemmtiatriði passa best inn svo flæðið í veislunni haldist gott.
Aðstaða og tæknibúnaður
Athugið hvort salurinn hafi nægt pláss, rafmagn, hljóðkerfi, hljóðnema, svið og hvort einhverjar hávaðatakmarkanir gildi.
Verð, samningur og varaplan
Fáið skýrt fram hvað er innifalið, hversu lengi viðkomandi spilar eða kemur fram, hvort ferðakostnaður bætist við og hvað gerist ef veikindi eða tæknibilun koma upp.